Friday, June 27, 2008

22. ágúst!


Flestir þeirra sem við höfum heyrt í virðast komast 22. ágúst og best að fastsetja þann dag. Endilega takið daginn frá! Elísabet Gunnarsdóttir hefur boðið fram húsnæði sitt að Háteigsvegi 19.  Inngangur er á vinstri hlið hússins, bjallan er hægra megin.  Frjáls framlög í mat og drykk, aðalmálið að hittast og hafa gaman.  Fólki er velkomið að mæta kl.20.30.
Við reynum að ná í Hrefnu Birnu og Hannes, bjóðum þeim að koma ;)
Sumarkveðja, nefndin.

2 comments:

Hróar said...

Frábært, vona að sem flestir mæti.

Jóhanna said...

Hæ hæ
Vildi að ég kæmist að hitta ykkur en ég verð erlendis þessa helgi. Hefði verið svo gaman að hitta alla en ég kem bara pottþétt næst. Skemmtið ykkur vel og kveðja til allra.
Jóhanna Vilhjálmsdóttir